Innlent

Jóhannes Þór segir Jónas dóna og bjána

Jakob Bjarnar skrifar
Víst er að Jónas er enginn augnakarl í ranni Framsóknarmanna. Jóhannes Þór segir nú bjánaskrifin slík að hann verði að fetta fingur út í þau.
Víst er að Jónas er enginn augnakarl í ranni Framsóknarmanna. Jóhannes Þór segir nú bjánaskrifin slík að hann verði að fetta fingur út í þau.
Jóhannes Þór Skúlason, fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, vandar Jónasi Kristjánssyni, fyrrverandi ritstjóra ekki kveðjurnar á Facebook-síðu sinni.

Jóhannes segir Jónas fara með staðlausa stafi þar sem hann talar um að Sigmundur Davíð sé dýrasti þingmaðurinn. Það gerir hann í nýlegum pistli á síðu sinni. Þar segir meðal annars:

„Sigmundur Davíð hefur ekki verið ráðherra í allt sumar. Samt hefur honum tekizt að halda aðstoðarmann, bíl og bílstjóra á ríkiskostnað. Líklega á grundvelli frekjunnar.“

Langlundargeð Framsóknarmanna gagnvart óvægnum skrifum Jónasar er á þrotum, ef marka má Facebookfærslu Jóhannesar Þórs.
Jónas hefur lengi reynt á langlundargeð Framsóknarmanna en nú er það á þrotum ef marka má skrif Jóhannesar Þórs sem skefur ekki utan af því:

„Ég reyni nú yfirleitt að leiða bjánaskrif Jónasar Kristjánssonar hjá mér, en þegar hann beinlínis hendir í mig fullkomnu kjaftæði þá get ég ekki látið hjá líða að benda á að það, eins og svo margt annað sem Jónas skrifar, á ekki við nokkur rök eða sannleika að styðjast,“ segir Jóhannes Þór, og heldur svo áfram:

„Það er semsagt ekki sannur stafur í þessum pistli. Enginn bílstjóri, enginn bíll og eini aðstoðarmaðurinn er ég, ráðinn af Alþingi skv. reglunni um að allir formenn stjórnmálaflokka sem sitja á þingi en eru ekki ráðherrar megi ráða aðstoðarmann í fullu starfi.“ Jóhannes Þór segir að endingu þetta ágætt dæmi um „sannleiksást dónans Jónasar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×