Enski boltinn

Agüero meiddist á æfingu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sergio Agüero er tæpur vegna meiðsla.
Sergio Agüero er tæpur vegna meiðsla. vísir/getty
Sergio Agüero, framherji Manchester City, meiddist á æfingu argentínska landsliðsins í gær og er tæpur fyrir leik Argentínu gegn Paragvæ í undankeppni HM 2018 annað kvöld.

Agüero meiddist í kálfa og þurfi að yfigefa æfingu argentínska liðsins, en hann missti af síðustu leikjum Argentínu einmitt vegna meiðsla í kálfa.

Framherjinn fer í myndatöku í dag og þá kemur í ljós hvort hann geti spilað gegn Paragvæ annað kvöld og stórleik Manchester City gegn Everton á laugardaginn.

Agüero er búinn að skora fimm mörk í fimm leikjum fyrir Manchester City á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni þar sem liðið er á toppnum með 18 stige ftir sjö leiki.

Argentína er í fimmta sæti í undankeppni Suður-Ameríku fyrir HM 2018 í Rússlandi með 16 stig eftir níu leiki en undankeppnin þar er nú hálfnuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×