Innlent

Halldór Valur skipaður forstöðumaður á Litla-Hrauni og Sogni

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Halldór Valur Pálsson hefur starfað hjá Fangelsismálastofnun frá árinu 2004.
Halldór Valur Pálsson hefur starfað hjá Fangelsismálastofnun frá árinu 2004. vísir/gva
Halldór Valur Pálsson hefur verið skipaður forstöðumaður fangelsisins Litla-Hrauni og Sogni. Hann er þrjátíu og fimm ára stjórnmálafræðingur og hefur starfað hjá Fangelsismálastofnun frá árinu 2004, síðast sem öryggisstjóri.

Í tilkynningu frá Fangelsismálastofnun segir að Halldór hafi komið að mörgum verkefnum hjá stofnuninni á þessum tíma og hafi yfirgripsmikla þekkingu á fangelsismálum og öðrum verkefnum. Hann hafi borið ábyrgð á rekstri samfélagsþjónustu, umsókn og innleiðingu rafræns eftirlits, fjölmörgum verefnum á sviði öryggismála innan fangelsanna, umsókn með dags- og skammtímaleyfum fanga og viðbragðsáætlanagerð.

Halldór hefur jafnframt sinnt kennslu í Fangavarðaskólanum og tekið þátt í norrænu samstarfi á sviði fangelsismála. Hann hefur setið í vinnuhópum vegna þarfagreiningar og hönnunar nýs fangelsis á Hólmsheiði, verið ráðgjafi dómefnda í samkeppnu um hönnun þess, verið fulltrúi stofnunarinnar í verkefninu á byggingartíma og komið að fleiri uppbyggingarverkefnum í fangelsiskerfinu á undanförnum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×