Á annað hundrað látnir eftir loftárás á útfararstofu Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. október 2016 17:58 Það sem eftir stendur af útfararstofunni. Mynd/Twitter
Talið er að 155 hafi látist í loftárásum bandalags Sádi-Araba á útfararstofu í höfuðborg Jemens, Saana, í dag.Þetta hefur CNN eftir tveimur starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins þar í landi. Talið er að á fimmta hundrað hafi annað hvort slasast eða látið lífið í árásinni en mikill fjöldi var saman kominn til að minnast föður innanríkisráðherra Húta-ættbálksins sem lést á dögunum. Bandalag ríkja undir forystu Sádi-Araba hafa allt frá því í mars á síðasta ári reynt að hrekja sveitir Húta á bak aftur með öflugum loftárásum.Markmið bandalagsins er að koma Abd-Rabbu Mansour Hadi Jemenforseta aftur til valda. Hadi, sem naut stuðnings Bandaríkjanna, dvelur nú í Sádi-Arabíu eftir að Hútar náðu höfuðborginni Sanaa á sitt vald í september á liðnu ári. Þaðan hafa uppreisnarsveitirnar, með stuðningi íranskra stjórnvalda, hertekið stóran hluta landsins. Stríðið hefur stigmagnast á síðustu misserum sem hefur gert sveitum íslamska ríkisins og Al Qaeda kleift, í slagtogi við aðra andstæðinga Húta, að blanda sér í átökin. Minnst 10 þúsund manns hafa látið lífið í átökum í Jemen og þar er um helmingur almennir borgarar. Um 2,5 milljónir hafa þurft að flýja heimili sín. Ítrekað hefur verið reynt að koma á vopnahlé í landinu, nú síðast í ágúst, en ætíð án árangurs.
Mest lesið Netanyahu heitir hefndum Erlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Innlent Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Sjá meira