Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var í kvöld kjörinn Íþróttamaður ársins 2016 en niðurstöður úr kosningu Samtaka íþróttafréttamanna voru tilkynntar við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu.
Þetta er í annað skiptið sem Gylfi hlýtur sæmdarheitið Íþróttamaður ársins en hann var einnig kosinn Íþróttamaður ársins 2013. Aðeins tveir aðrir knattspyrnumenn hafa hlotið þessi verðlaun
tvisvar eða þeir Ásgeir Sigurvinsson og Eiður Smári Guðjohnsen.
Gylfi hafði verið í öðru sæti í kjörinu undanfarin tvö ár en fékk nú handleika styttuna eftirsóttu á nýjan leik.
Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir varð í öðru sæti í kjörinu í ár og þriðja varð síðan kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Hrafnhildur og Ólafía Þórunn hafa aldrei áður verið ofar í kjörinu á Íþróttamanni ársins en Hrafnhildur varð þriðja í kjörinu í fyrra.
Hrafnhildur Lúthersdóttir vann þrenn verðlaun á EM í 50 metra laug í maí en íslensk sundkona hafði aldrei áður unnið verðlaun á stórmóti í 50 metra laug. Hrafnhildur komst einnig í úrslit á Ólympíuleikunum í Ríó þar sem hún endaði í sjötta sæti í 100 metra bringusundi.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir náði besta árangri sem íslenskur kylfingur hefur náð þegar hún Tryggði sér keppnisrétt á LPGA atvinnumótaröðinni í Bandaríkjunum með eftirminnilegum hætti í byrjun desember. Ólafía fór í gegnum öll þrjú stig úrtökumótsins og endaði í öðru sæti á lokaúrtökumótinu en 20 efstu tryggðu sér keppnisrétt á LPGA á næsta tímabili.
Gylfi Þór Sigurðsson er vel að þessu kjöri kominn enda magnað ár að baki hjá íslenska miðjumanninum á öllum vígstöðum.
Gylfi átti frábært ár með bæði Swansea City í ensku úrvalsdeildinni sem og með íslenska landsliðinu í fótbolta sem sló í gegn á heimsvísu með því að komast alla leið í átta liða úrslit Evrópukeppninnar í Frakklandi.
Gylfi sett nýtt íslenskt met í ensku úrvalsdeildinni með því að skora fjórtán deildarmörk á árinu en Eiður Smári Guðjohnsen átti gamla metið sem var frá árinu 2002.
Gylfi skoraði 9 mörk fyrir Swansea í ensku úrvalsdeildinni frá janúar til maí og að flesta mati aðalástæðan fyrir því að velska liðið hélt sæti sínu í deildinni.
Gylfi hélt uppteknum hætti í haust og er kominn með 5 mörk og 5 stoðsendingar í fyrstu 18 leikjum Swansea á þessari leiktíð.
Gylfi var krefjandi hlutverki á miðju íslenska landsliðsins á EM í Frakklandi og einn allra besti leikmaður liðsins sem sló meðal annars út enska landsliðið í sextán liða úrslitum og komst alla leið í átta liða úrslit á sínu fyrsta stórmóti.
Gylfi og félagar í íslenska landsliðinu eru síðan búnir að ná í sjö stig í fyrstu fjórum leikjum sínum í baráttunni um sæti á HM í Rússlandi 2018. Íslenska liðið er búið með tvo erfiðustu útileiki sína í riðlinu og er til alls líklegt á næsta ári.
Gylfi skoraði alls tvö mörk í þrettán landsleikjum á árinu 2016 og annað markanna kom í 1-1 jafnteflisleik á móti Ungverjum í riðlakeppni EM.
Íþróttamaður ársins 1956-2016:
1956 Vilhjálmur Einarsson
1957 Vilhjálmur Einarsson (2)
1958 Vilhjálmur Einarsson (3)
1959 Valbjörn Þorláksson
1960 Vilhjálmur Einarsson (4)
1961 Vilhjálmur Einarsson (5)
1962 Guðmundur Gíslason
1963 Jón Þ. Ólafsson
1964 Sigríður Sigurðardóttir
1965 Valbjörn Þorláksson
1966 Kolbeinn Pálsson
1967 Guðmundur Hermannsson
1968 Geir Hallsteinsson
1969 Guðmundur Gíslason (2)
1970 Erlendur Valdimarsson
1971 Hjalti Einarsson
1972 Guðjón Guðmundsson
1973 Guðni Kjartansson
1974 Ásgeir Sigurvinsson
1975 Jóhannes Eðvaldsson
1976 Hreinn Halldórsson
1977 Hreinn Halldórsson (2)
1978 Skúli Óskarsson
1979 Hreinn Halldórsson (3)
1980 Skúli Óskarsson (2)
1981 Jón Páll Sigmarsson
1982 Óskar Jakobsson
1983 Einar Vilhjálmsson
1984 Ásgeir Sigurvinsson (2)
1985 Einar Vilhjálmsson (2)
1986 Eðvarð Þór Eðvarðsson
1987 Arnór Guðjohnsen
1988 Einar Vilhjálmsson (3)
1989 Alfreð Gíslason
1990 Bjarni Friðriksson
1991 Ragnheiður Runólfsdóttir
1992 Sigurður Einarsson
1993 Sigurbjörn Bárðarson
1994 Magnús Scheving
1995 Jón Arnar Magnússon
1996 Jón Arnar Magnússon (2)
1997 Geir Sveinsson
1998 Örn Arnarson
1999 Örn Arnarson (2)
2000 Vala Flosadóttir
2001 Örn Arnarson (3)
2002 Ólafur Stefánsson
2003 Ólafur Stefánsson (2)
2004 Eiður Smári Guðjohnsen
2005 Eiður Smári Guðjohnsen (2)
2006 Guðjón Valur Sigurðsson
2007 Margrét Lára Viðarsdóttir
2008 Ólafur Stefánsson (3)
2009 Ólafur Stefánsson (4)
2010 Alexander Petersson
2011 Heiðar Helguson
2012 Aron Pálmarsson
2013 Gylfi Þór Sigurðsson
2014 Jón Arnór Stefánsson
2015 Eygló Ósk Gústafsdóttir
2016 Gylfi Þór Sigurðsson (2)
Fótbolti