Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Fjallað verður ítarlega um stjórnarmyndunarviðræðurnar í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Þar verður einnig fjallað ítarlega um starfslok Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, en einnig um grunnskólakennara sem fæstir virðast ætla að samþykkja nýjan kjarasamning.

Þá verður rætt við starfsmenn Rauða krossins á Íslandi sem tóku þátt í björgun rúmlega eitt þúsund flóttamanna á Miðjarðarhafinu og margt fleira.

Kvöldfréttir Stöðvar 2 hefjast á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan 18:30 en fréttirnar eru einnig í beinni útsendingu á fréttavefnum Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×