Skoðun

Okkar Kópavogur – Kársnesið

Héðinn Sveinbjörnsson skrifar
Á fundi sem Kópavogsbær boðaði til í Kársnesskóla þriðjudaginn 29. nóvember síðastliðinn voru kynntar  skipulagslýsingar fyrir þróunarsvæði á Kársnesi og brú yfir Fossvog.  Þróunarsvæðið er vestast á nesinu og einnig norðan megin í Fossvoginum.

Nokkuð margir lögðu leið sína á þennan fund og kynningin var ekki af verri endanum. Flott myndasýning af öllu sem hugsanlega gæti verið byggt á svæðinu ásamt því að farið var yfir vinningstillögu úr Nordic Built, Spot on Kársnes, og samgöngur á nesinu.  Ég ætla ekki að gleyma jákvæðninni sem var í boði bæjarstjórans og skipulagsfulltrúans.  Jákvæðnin fólst í:

-    brú yfir Fossvoginn, fyrir gangandi, hjólandi og strætó

-    1200 íbúðum

-    35.000 m2 atvinnuhúsnæði

-    eitt hótel og mögulega fleiri

-    fasteignaverð myndi hækka með tíð og tíma

Ég verð að viðurkenna að ég vil mjög gjarnan sjá breytingar á þessu umrædda svæði en ég smitaðist ekki af þessari ofur jákvæðni. Af hverju? Samkvæmt tillögum þá er verið að skoða þrengingu á Kársnesbrautinni austan Urðarbrautar og einnig Borgarholtsbrautar vegna aukinnar umferðar bíla. Þessar breytingar á gatnakerfinu myndu auka öryggi og styrking almenningssamgangna ásamt brúnni myndu dreifa umferðarálagi!

Samkvæmt spám og útreikningum er áætlað að umferð um Kársnesbrautina myndi aukast úr um það bil 6.500 bílum á dag í 16.300 bíla á dag. Nei, fyrirgefið mér 12.300 bíla á dag vegna styrkingar almenningssamgangna! Ef markmiðið er að efla bíllausan lífstíl þá gefur þetta góð fyrirheit um framtíðina og minnkandi umferð um Kársnesið.

Kársnesbraut er skilgreind sem umferðarmikil gata og viðbúið að hljóðstyrkur hækki um 1-7 dB(A) á framkvæmdatíma.  Við ákveðið hús við götuna voru gerðar mælingar á umferðarhávaða í maí 1994. Þær sýndu umferðarhávaða utanhúss upp á 61,6 dB(A). Það væri gaman að heyra frá bæjaryfirvöldum hvort nýrri mælingar liggi fyrir þar sem umferð hefur margfaldast á þeim 22 árum sem liðin eru frá ofangreindri mælingu.

Ég er að rembast við að vera jákvæður því ég vil mjög gjarnan að þetta svæði verði fallegt en ég skil ekki hugmyndafræðina.  Er markmiðið að endurvekja brandarann um gatnakerfið í Kópavogi? Hvernig eiga göturnar á Kársnesinu að þola alla þessa umferð? Eiga allir íbúar Kársness að taka upp bíllausan lífstíl af því að í samanburðarborginni Þrándheimi er þetta allt svo æðislegt? Nær golfstraumurinn alla leið þangað?

Á fundinum leið mér eins og að bæjarstjórinn og skipulagsfulltrúinn væru að gefa mér sítrónu og með jákvæðni og sannfæringarkrafti reyndu að segja mér að þetta væri appelsína. Íbúalýðræðið sem bæjaryfirvöld eru að bjóða upp á er ekkert annað en sýndarlýðræði.

Hvernig væri að þið færuð að vinna fyrir fólkið ykkar ekki verktakana sem vilja bara byggja meira og hærra!




Skoðun

Sjá meira


×