Erlent

Reyndi að ræna 13 ára stúlku í verslun

Samúel Karl Ólason skrifar
Maður í Flórída reyndi nýverið að ræna 13 ára stúlku í verslun fyrir framan móður hennar. Atvikið og það hvernig móðir stúlkunnar kom í veg fyrir mannránið náðist á myndband. Þar sést hvernig hinn 30 ára gamli Craig Bonello dregur stúlkuna eftir gólfi verslunarinnar og móðir hennar stöðvar hann.

Bonello hljóp því næst út úr versluninni og beint í flasið á lögregluþjóni á frívakt. Lögregluþjónninn hafði heyrt í umsjónarmanni verslunarinnar kalla eftir hjálp og króaði Bonello af í bíl sínum.

Samkvæmt Sky News er Bonello ekki skráður kynferðisbrotamaður og liggja ætlanir hans ekki fyrir. Lögreglan segir atvikið ótrúlegt og að móðir stúlkunnar hafi líklega bjargað lífi hennar. Stúlkan slasaðist ekki og hefur fengið áfallahjálp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×