Erna Bergmann stílisti segir myndaþáttinn hafa mikilvæg skilaboð.

Maður stendur sjálfan sig svo oft að því að fara í dómarasætið gagnvart fólki af því að í fyrsta lagi þekkir maður það ekki og svo afþví það er ekki með sömu skoðanir á lífinu og hvernig það vill lifa því og maður sjálfur. Hvað við gerum við líkama okkar sem konur er okkar val.
Kannski erum við ekki alltaf sammála því sem fólk gerir og ekki allir kannski myndu vilja sitja naktir en okkur finnst við vera oft svo dómhörð að dæma fólk ef við erum ekki sammála því,“ segir Erna.
„Eins og til dæmis með Ásdísi, hún er viðskiptamógúll og þyrluflugmaður, bara ótrúlega klár og dugleg kona. En fólk er kannski með fyrirframgefnar hugmyndir um Ásdísi án þess að þekkja hana, vegna þess að hún hefur t.d. setið fyrir í Playboy ,“ segir Erna sem sá um að stílísera myndaþáttinn en Saga Sigurðardóttir tók myndirnar.
Sjá einnig:Grét yfir bréfum frá konum

Hún segir samstarfið hafa gengið eins og í sögu.
„Henni líður bara vel í eigin skinni og er mjög sátt við sjálfa sig og var til í allt. Það var gaman og gefandi að vinna með henni.“
Blætisteymið sérhannaði föt á Ásdísi fyrir myndaþáttinn.
„Já, við gerðum t.d. sokka á hana sem á stóð „proud“ og „sexy“. Skilaboðin þar eru að það er bara allt í góðu að vera kynþokkafull og stolt af því. Það er ekkert til að skammast sín fyrir. Við megum vera „sexy“. Svo gerðum við líka bol á hana sem stendur á „I own myself“, sem þýðist sem „ég á mig sjálf“.“
Sjá einnig:Fjölmenni í útgáfuteiti Blætis

„Við lögðum allt í þetta. Þetta er stór þáttur, einn af burðarþáttum blaðsins myndi ég segja, og þetta gekk framar vonum. Við erum búnar að fá frábærar viðtökur, fullt af fallegum kveðjum og bréfum og fólk labbar upp að okkur og hrósar.“
Erna segir umgjörðina í kringum myndaþáttinn bæta miklu við myndirnar.
„Það sem Alma Mjöll, ung listakona, skrifaði í inngang að myndaþættinum gefur myndunum aukið vægi. Þar skrifar hún um að vera kona og hvaða væntingar hún hefur. Svo er það endakaflinn sem Arnar Freyr Frostason úr Úlfur Úlfur skrifar. Það er einlægur og flottur texti um m.a. að hann geti horft á Ásdísi án þess að dæma hana. Og þá verða myndirnar táknrænni fyrir vikið,“ segir Erna.