Enski boltinn

Zlatan fór á Man. City-hótelið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zlatan var ekki skemmt er hann komst að sundlaugarskortinum.
Zlatan var ekki skemmt er hann komst að sundlaugarskortinum. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic var ósáttur við hótelið sem Man. Utd skaffaði honum í Manchester.

Svo ósáttur var Zlatan við hótelið að hann yfirgaf það aðeins nokkrum mínútum eftir að hafa komið þangað.

Ástæðan var einföld. Það var engin sundlaug á hótelinu og Zlatan er mikill sundlaugarmaður.

Man. Utd setti hann á Lowry-hótelið sem félagið notar fyrir heimaleiki. Það uppfyllti ekki kröfur Zlatan.

Hann fór yfir á Radisson Blu-hótelið í borginni en það er einmitt hótelið sem Man. City notar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×