Enski boltinn

Rahman lánaður til Þýskalands

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Baba Rahman.
Baba Rahman. vísir/getty
Antonio Conte, stjóri Chelsea, hefur engin not fyrir varnarmanninn Baba Rahman í vetur og er því búinn að lána hann.

Rahman mun spila með þýska félaginu Schalke í vetur. Hann þekkir vel til í þýska boltanum en hann kom til Chelsea frá Augsburg fyrir ári síðan.

Rahman kom við sögu í 23 leikjum með Chelsea á síðustu leiktíð en gekk ekki vel að festa sinn sess í liði Chelsea.

Að Chelsea skuli lána Rahman kemur engu að síður óvart í ljósi þess að félagið er aðeins með tvo bakverði í hópnum. Conte ætlar því augljóslega að versla bakvörð áður en glugginn lokar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×