Enski boltinn

Gylfi framlengdi við Swansea

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gylfi verður áfram í hvítu.
Gylfi verður áfram í hvítu. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson batt enda á allar sögusagnir um framtíð hans hjá félaginu nú í hádeginu.

Þá staðfesti hann á Instagram-síðu sinni að hann væri búinn að skrifa undir nýjan samning við Swansea.

Nýi samningur Gylfa við félagið er til fjögurra ára. Hann er því samningsbundinn félaginu til þrítugs.

Gylfi hafði verið orðaður við nokkur félög upp á síðkastið og þá kannski einna helst Everton. Ekkert verður af því að hann fari þangað.

Delighted to have signed a new 4 year deal with @swansofficial Looking forward to the new season!

A photo posted by Gylfi Sigurdsson (@gylfisig23) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×