Drap tveggja ára dóttur sína þar sem honum þótti hún fá of mikla athygli Atli Ísleifsson skrifar 20. september 2016 20:50 Ryan Lawrence og Maddox litla.
Bandaríkjamaðurinn Ryan Lawrence viðurkenndi í síðustu viku fyrir dómara í New York-ríki að hafa drepið tæplega tveggja ára dóttur sína í febrúar síðastliðnum. Saksóknarar sögðu Lawrence hafa þótt dótturina fá of mikla athygli eftir að hún sigraðist á krabbameini í auga og hafi það orðið til þess að hann banaði henni. Morgan, móðir Maddox, brotnaði niður í réttarsalnum í New York-ríki þegar dómarinn las nákvæma og hryllilega lýsingu á því hvernig hinn 25 ára Lawrence fór með 21 mánaða dóttur sína á afskekktan stað, sló hana ítrekað með trékylfu, kom líki hennar fyrir í eldstæði þar sem hann brenndi líkið og trékylfuna og batt svo líkamsleifarnar við steypuklump og sökkti því í Onondaga-ánni.Á möguleika á reynslulausn eftir 25 árLawrence var dæmdur til 25 ára til lífstíðarlangrar fangelsisvistar. Hann mun fyrst eiga möguleika á reynslulausn að 25 árum liðnum. Saksóknarar og lögmaður Lawrence sögðu fjölskylduna vilja komast hjá réttarhöldum ef Lawrence myndi gangast við morðinu og sitja inni í að lágmarki 25 ár.Skildi eftir miðaÍ frétt Washington Post um málið segir að Maddox og faðir hennar hafi horfið skyndilega í febrúar síðastliðnum. Lögregla lýsti þá eftir þeim og sögðu Maddox síðast hafa verið klædda hvítri peysu með myndum af brúnum hvolpum, bleikum buxum, kápu og prjónaðri húfu. Morgan kom á sínum tíma fram í fjölmiðlum þar sem hún biðlaði til Ryan að snúa aftur með dóttur þeirra, en hann hafði þá skilið eftir miða sem benti til þess að hann kynni að meiða annað hvort sjálfan sig eða barnið.Að neðan má sjá þegar Morgan biðlaði til barnsföður síns að skila dóttur þeirra.Ryan fannst svo nokkrum dögum síðar og í kjölfarið lík Maddox litlu í ánni í bænum Syracuse. Í skýrslum lögreglu segir að Ryan hafi þann 20. febrúar ekið konu sinni á fjölskyldubílnum í fataverslun þar sem hún starfaði. Ryan átti að sækja hana aftur síðar um daginn en mætti hins vegar aldrei. Hann hafði þá skilið bílinn eftir með lykla og miðann innan í. Í kjölfarið hófst svo mikil leit að feðginunum.Að neðan má sjá Lawrence játa brot sitt.Verjendur sögðu eftir að Lawrence hafði játað á sig glæpinn að hann væri niðurbrotinn og iðraðist gjörða sinna.
Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Innlent Fleiri fréttir Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Sjá meira