Fótbolti

Arftaki Neville rekinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ayestaran í síðasta leik sínum með Valencia.
Ayestaran í síðasta leik sínum með Valencia. vísir/getty
Þó svo það sé lítið búið af tímabilinu á Spáni er Valencia búið að reka þjálfarann sinn.

Pako Ayestaran fékk sparkið í dag eftir aðeins fjóra leiki af deildarkeppninni. Þeir töpuðust allir og það sætti stjórn félagsins sig ekki við.

Hinn 53 ára gamli Ayestaran tók við liðinu af Gary Neville í mars síðastliðnum. Hann stýrði liðinu alls í tólf leikjum og átta þeirra töpuðust.

Salvador Gonzalez Marco verður bráðabirgðaþjálfari Valencia en þetta verður í fjórða sinn sem hann stekkur í það hlutverk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×