Bandaríkjastjórn sakar Rússa um árásina í Aleppo Atli Ísleifsson skrifar 20. september 2016 23:00 Bílalestin áður en hún lagði af stað. MYND/RAUÐI HÁLFMÁNINN
Bandarísk stjórnvöld sökuðu í dag tvær rússneskar orrustuþotur um að bera ábyrgð á loftárásinni í gær sem beindist gegn bílalest Sameinuðu þjóðanna og Rauða hálfmánans fyrir utan sýrlensku borguna Aleppo. Bílalestin var að flytja mat og önnur hjálpargögn til tugþúsunda manna. Átján af 31 vörubílum eyðilögðust og tuttugu óbreyttir borgarar fórust í árásinni. Rússar hafa hafnað ásökununum, líkt og talsmenn Sýrlandsstjórnar, sem hafa notið stuðnings Rússa í baráttunni gegn uppreisnarmönnum. Segja talsmenn Rússlandsstjórnar að ekki hafi verið skotið á bílalestina úr lofti heldur af jörðu niðri. Verið var að tæma bílana þegar árásin var gerð en í bílunum voru meðal annars matvæli og lyf fyrir tugþúsundir manna sem fastir eru í þorpinu Urem al-Kubra, skammt frá Aleppó. Sameinuðu þjóðirnar hafa í kjölfar árásarinnar stöðvað allar hjálparsendingar þar til tryggt þyki að bílalestir verði ekki fyrir frekari árásum.
Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Innlent Fleiri fréttir Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Sjá meira