Innlent

Vilja gera tölvunarfræði að skyldufagi í grunnskólum

Tölvunarfræði hefur verið innleidd í námskrár grunnskóla í að minnsta kosti nítján ríkjum Evrópu.
Tölvunarfræði hefur verið innleidd í námskrár grunnskóla í að minnsta kosti nítján ríkjum Evrópu. mynd/getty
Hundrað stjórnendur úr íslensku atvinnulífi hafa skorað á verðandi stjórnvöld að gera tölvunarfræði að skyldufagi á grunnskólastigi. Yfirlýsingin birtist í heild sinni á vefsíðunni xHugvit.

Í yfirlýsingunni kemur fram að hópurinn vilji að tölvunarfræði verði innleidd í aðalnámsskrá grunnskóla og að forritunarkennslan ætti að hefjast í yngstu bekkjum grunnskóla. Að mati áskorendanna er kennsla í forritun forsenda fyrir því að tryggja komandi kynslóðum gott lífsviðurværi í framtíðinni.

„Tölvur eru allt í kringum okkur og munu halda áfram að verða enn veigameiri þáttur í lífum okkar. Störf, bæði á innlendum og erlendum vinnumarkaði, krefjast sífellt meiri þekkingar á virkni tölva og óhætt er að segja að sú þróun eigi eftir að verða sífellt hraðari á næstu árum. Svo íslensk börn geti notið góðs af auknu tæknistigi í heiminum þurfa þau að hafa getu til að beisla kraft tölvunnar frá sjónarhóli sköpunar, fremur en bara sjónarhóli neyslu.

Með því að kenna tölvunarfræði og forritun í grunnskóla tryggjum við að öll börn hafi næga möguleika til að öðlast færni í þessu mikilvæga fagi og komum í veg fyrir að fagið virki ógnvekjandi á nemendur síðar á skólagöngu sinni,“ segir í yfirlýsingunni. Þar segir jafnframt að nágrannalönd okkar í Evrópu séu óðum að innleiða tölvunarfræði í aðalnámskrá grunnskóla.

Áskorendurnir eru:

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP

Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri CCP

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar

Sveinn Sölvason, fjármálastjóri Össurar

Nótt Thorberg, Framkvæmdastjóri Marel á Íslandi

Ragnheiður H. Magnúsdóttir, viðskiptastjóri hjá Marel, formaður SUT, Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja

Jens Bjarnason, framkvæmdastjóri Innova, hugbúnaðarseturs

Marel Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins

Brynja Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo

Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Símans

Gunnar Fjalar Helgason, yfirmaður stefnumótunar hjá Símanum

Heimir Fannar Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi

Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania

Jóhann Þór Jónsson, forstöðumaður hjá Advania, formaður DCI, Samtaka gagnavera á Íslandi

Sigurður Páll Hauksson, forstjóri Deloitte

Bala Kamallakharan, stofnandi Startup Iceland ehf

Kristjan F. Kristjansson, framkvæmdastjóri markaðslausna og viðskipta á Íslandi hjá Meniga

Eiríkur Hrafnsson, stofnandi og rekstrarstjóri Greenqloud

Davíð Ólafur Ingimarsson, fjármálastjóri Greenqloud

Gunnar Hólmsteinn, rekstrarstjóri Plain Vanilla

Vignir Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Radiant Games, formaður IGI, Samtaka leikjaframleiðenda

Haukur Steinn Logason, Head of Games hjá Radiant Games

Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja

Dröfn Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Nýherja

Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri fjármála og reksturs hjá Nýherja

Sveinn Orri Tryggvason, forstöðumaður hjá Nýherja

Ásta Guðmundsdóttir, hópstjóri kerfisþjónustu hjá Nýherja

Björgvin Friðriksson, deildarstjóri hjá Nýherja

Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups

Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical

Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís

Þorvarður Sveinsson, yfirmaður stefnumótandi verkefna hjá Vodafone

Fannar Örn Þorbjörnsson, forstöðumaður hjá Vodafone

Sigurður Amlin Magnússon, forstöðumaður hjá Vodafone

Bára Mjöll Þórðardóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptamála hjá Vodafone

Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor

Guðjón Már Guðjónsson, framkvæmdastjóri OZ Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova Helga Valfells, framkvæmdastjóri NSA Ventures

Svana Gunnarsdóttir, Partner hjá Frumtak Ventures

Þórður Magnússon, formaður Eyrir invest

Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

Ragnheiður Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar

Ólafur Örn Nielsen, framkvæmdastjóri Kolibri

Benedikt Magnússon, sviðsstjóri ráðgjafasviðs KPMG

Sesselja Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Tagplay

Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský, Skýrslutæknifélags Íslands

Kári Þór Rúnarsson, framkvæmdastjóri Authenteq

Hjalti Baldursson, forstjóri Bókunar ehf

Arnar Laufdal Ólafsson, framkvæmdastjóri Kaptio

Geir Borg, framkvæmdastjóri Gagarín ehf

Kristín Eva Ólafsdóttir, hönnunarstjóri Gagarín ehf

Jói Sigurðsson, stofnandi og framkvæmdastjóri CrankWheel

Pétur Orri Sæmundsen, framkvæmdastjóri Vizido

Rakel Sölvadóttir, framkvæmdastjóri Skema

Erla Andrea Pétursdóttir, viðskiptaþróun hjá Applicon

Sveinn Kristinn Ögmundsson, hópstjóri hjá Applicon

Ingimar Bjarnason, framkvæmdastjóri Applicon

Rafn Yngvi Rafnsson, hópstjóri hjá Applicon

Valgerður Hrund Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sensa

Ómar Henningsson, tæknistjóri Sensa

Guðmundur Stefán Björnsson, öryggismál og innri upplýsingatækni hjá Sensa

Sigurður M. Jónsson, sölustjóri hjá Sensa

Orri Björnsson, framkvæmdastjóri Algalíf

Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Expectus

Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri Watchbox

Kristján Ingi Mikaelsson, tækniþróunarstjóri Watchbox

Gunnar Björn Þórhallsson, upplýsingatækni hjá Netkerfi og tölvur ehf

Elvar Örn Þormar, framkvæmdastjóri Reon

Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, stofnandi og ritstjóri NorthStack

Jökull Sólberg Auðunsson, stofnandi Takumi

Ólafur Daðason, framkvæmdastjóri Hugvits

Róbert Marinó Sigurðsson, eigandi og framkvæmdastjóri MyTimePlan

Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika ehf

Sigmar Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri Star-Oddi

Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri TrackWell Software

Gunnar Bjarnason, framkvæmdastjóri Miracle

Erna Arnardóttir, mannauðsstjóri Novomatic Lottery Solytions hf.

Ásbjörn Elías Torfason, nýsköpun hjá Vistvæn Orka

Jón Árni Bragason, rekstrarstjóri TripCreator

Bragi Þór Antoníusson, markaðsstjóri TripCreator

Einar Ben, framkvæmdarstjóri Tjarnargötunnar

Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskína-rannsóknir ehf

Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri Borealis Data Center

Þórður Höskuldsson, hugbúnaðargerð og þjónusta hjá Outcome kannanir ehf.

Sindri Bergmann, framkvæmdastjóri Loftfarsins

Sölvi Melax, framkvæmdastjóri Cario

Karl Már Lárusson, framkvæmdastjóri Anitar ehf.

Guðmundur Lúther Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Bungalo

Stefán Ö. Einarsson, stofnandi TeqHire

Hannes Pétursson, tæknistjóri TravAble ehf

Marinó Páll Valdimarsson, framkvæmdastjóri Gracipe

Herdís Helga Arnalds, meðstofnandi Literal Streetart

Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP

Hlynur Hallgrímsson, rekstrarstjóri Konunglega siglingasambandsins

Stefán Gunnarsson, framkvæmdastjóri Solid Clouds

Hrafn Þorri Þórisson, framkvæmdastjóri Aldin Dynamics

Gunnar S. Valgarðsson, tæknistjóri og stjórnarformaður Aldin Dynamics

Daði Einarsson, stofnandi og Creative Director hjá RVX

Burkni J. Óskarsson, framkvæmdastjóri Lumenox

Margrét Júlíana Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Rosamosi ehf.

Jóhann Helgi Ólafsson, framkvæmdastjóri MouseTrap ehf

Diðrik Steinsson, framkvæmdastjóri Mure ehf Marco Bancale, stofnandi Licorice

Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Locatify




Fleiri fréttir

Sjá meira


×