Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokks, segir hugmyndir Framsóknarmanna um að finna Landspítalanum nýjan stað muni tefja uppbyggingu spítalans.

Framsóknarflokkurinn kynnti í gær stefnumál sín fyrir komandi kosningar en þeir leggja áherslu á að nýr Landspítali verði byggður áöðrum stað en við Hringbraut.

Rætt verður við Bjarna í fréttum Stöðvar 2 í kvöld vegna málsins.

Þá verður einnig fjallað um boðað allsherjarverkfall sjómanna en þeir samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta að leggja niður störf í byrjun næsta mánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×