Innlent

Segir Reykjavíkurborg ætla að fórna einni af náttúruperlum borgarinnar undir íbúðabyggð

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Varaformaður hverfisráðs Grafarholts og Úlfarsársdals segir að Reykjavíkurborg ætli sér að fórna einni af náttúruperlum borgarinnar undir íbúðabyggð. Borgin hafi sópað athugasemdum hverfisráðsins varðandi fyrirhugaðan byggingarreit undir teppið og skipulagt svæðið þvert á vilja ráðsins og íbúa hverfisins.

Á nokkrum stöðum í Reykjavík er að finna útivistarperlur á borð við umhverfið í kringum Reynisvatn. Á föstudag kynnti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri uppbyggingaráætlun Reykjavíkurborgar næstu ár og áratugi og í henni má sjá að það verður breyting á ásýnd borgarinnar á nokkrum stöðum, meðal annars við Reynisvatn þar sem er gert ráð fyrir byggingu 49 íbúða.

Á fundi hverfisráðs Grafarholts og Úlfarsársals sem haldinn var 20. september síðastliðinn lýsti ráðið yfir þungum áhyggjum af því að skipulag byggingareitsins við Reynisvatn sé enn á dagskrá þrátt fyrir margítrekaðar athugasemdir íbúa og ráðsins um að ekki verði byggt á þessu svæði heldur verði það skipulagt sem útivistarsvæði.

Óttarr Guðlaugsson, varaformaður hverfisráðs Grafarholts og Úlfarsárdals, segir hverfisráð hafa lagt ríka áherslu á að ekki verði byggt við Reynisvatn. Stutt sé í Úlfarsárdal þar sem sé nægt byggingarsvæði. Það komi því íbúum verulega á óvart að til standi að byggja við Reynisvatn.

Óttarr segir að kallað hafi verið eftir fundi með borgarstjóra og fulltrúum umhverfis- og skipulagsráðs en ekki hafi verið orðið við því. „Athugasemdir íbúa sem skipta tugum, ef ekki hundruðum, þeim hefur einfaldlega verið sópað undir. Það er ekki verið að skoða þær og ekki verið að hlusta á þá íbúa sem búa í hverfinu.“

Svæðið sem umræddir byggingareitir eru á eru flokkaðir sem þróunarreitir í skipulagi borgarinnar. Óttarr telur þó að skipulagið sé komið mun lengra. „Þegar maður heyrir það og les, það er reyndar úr gögnum hjá Reykjavíkurborg, að byggingaverktakar séu farnir að líta hýru auga á svæðið, þá veit maður það að umhverfis- og skipulagssvið er komið aðeins lengra með þróunina á svæðinu en bara það að þetta sé „fjólublár reitur“ í aðalskipulagi,“ segir Óttarr.

Á heimasíðu borgarinnar segir að hverfisráð skuli vera vettvangur samráðs íbúa og borgaryfirvalda og að þau séu virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna. Óttarr segir að með ákvörðun borgarinnar á þessu svæði sé farið gegn vilja íbúa svæðisins og spyr hver tilgangur hverfisráðanna sé, ef þau hafa lítið sem ekkert að segja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×