Innlent

Matvælastofnun varar við fæðubótarefni eftir dauða ungrar konu

Birgir Olgeirsson skrifar
Um er að ræða þrjár tegundir af megrunartei sem innihalda ólöglega lyfjavirka efnið sibutramine.
Um er að ræða þrjár tegundir af megrunartei sem innihalda ólöglega lyfjavirka efnið sibutramine. Vísir/Getty
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF um varasöm fæðubótarefni. Um er að ræða þrjár tegundir af megrunartei sem innihalda ólöglega lyfjavirka efnið sibutramine. Efnið er ekki gefið upp í innihaldslýsingu á vörunum og var bannað í Evrópu og Bandaríkjunum árið 2010 vegna alvarlegra aukaverkana, einkum tengdum hjarta- og æðakerfi. Grunur leikur á um að dauðsfall ungrar konu í Hollandi megi rekja til neyslu á þessum vörum og hafa Hollendingar varað við neyslu þeirra.

Ekki er vitað til þess að þessar vörur séu á markaði hérlendis en ekki er hægt að útiloka að þær séu fáanlegar, einkum í netsölu. Verði neytendur varir við þessar vörur eru þeir hvattir til að neyta þeirra ekki og upplýsa Matvælastofnun um hvar þær voru í boði. Vörutegundirnar eru nefndar EMTEA, NIVA detox and Irem natural og eru myndir af þeim birtar í ítarefni. Tvær fyrrnefndu tegundirnar eru framleiddar í Búlgaríu og sú þriðja í Tyrklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×