Menning

Áttunda Harry Potter bókin væntanleg í sumar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
J. K. Rowling er höfurndur Harry Potter.
J. K. Rowling er höfurndur Harry Potter. vísir/getty
Ný bók um galdradrenginn Harry Potter mun líta dagsins ljós á næsta afmælisdegi hans, 31. júlí. Bókin hefur fengið nafnið Harry Potter and the Cursed Child Parts I & II, sem gæti útlagst sem Harry Potter og barnið bölvaða á hinu ylhýra, og mun meðal annars innihalda handrit að nýju leikriti um Potter. Þetta kemur fram á vef BBC.

Sem stendur lítur kápa bókarinnar svona út en líklegt er að hún muni taka breytingum.
Meðal þess sem aðdáendur geta búist við eru áður ósagðar sögur af galdrastráknum, meðal annars kaflar úr lífi James og Lily sem voru foreldrar hans. Þau voru myrt af Voldemort skömmu eftir að Harry fæddist.

„J.K. Rowling og teymið hennar hafa fengið fjöldan allan af bónum frá aðdáendum sem geta ekki séð sýninguna og myndu vilja eiga kost á að geta lesið leikritið. Við erum hæstánægð með að geta orðið við þeirri bón,“ segir í yfirlýsingu frá stjórnanda Little, Brown Book Group sem gefur bókina út. 

Leikritið verður frumsýnt degi áður en bókin kemur út. Höfundar þess eru J.K. Rowling, Jack Thorne og John Tiffany. Í því sést Harry nítján árum eftir að lokabókin í flokknum, Harry Potter og dauðadjásnin, endar. Hann er orðinn skyggnir og starfar í galdramálaráðuneytinu.

Þetta verður áttunda bókin í bókaflokknum um Potter en sú síðasta kom út fyrir níu árum síðan. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.