Erlent

Þrettán ára bandarískur drengur fyrirfór sér eftir margra ára einelti

Atli Ísleifsson skrifar
Daniel Fitzpatrick.
Daniel Fitzpatrick. Mynd/Gofundme
Þrettán ára drengur frá Staten Island í New York fyrirfór sér í síðustu viku eftir að hafa þurft að þola einelti í skóla sínum um margra ára skeið.

Í frétt Independent segir að Daniel Fitzpatrick hafi skilið eftir sig harmrænt kveðjubréf þar sem hann útskýrir ástæður þess að hann hafi ákveðið að svipta sig lífi.

Í bréfinu segir að skólafélagar hans í Holy Angels Catholic Academy hafi ekki líkað við sig og hætt að tala við sig. Hafi hann lent í útistöðum við þá sem lögðu sig í einelti, en sama hvort hann veitti þeim mótstöðu eða ræddi við kennara þá hafi ekkert við gert til að stöðva eineltið.

„Ég gafst upp,“ stendur í handskrifuðu bréfi Daniel. „Kennararnir... þeir gerðu ekkert.“

Systir Daniel kom að honum látnum

Sautján ára systir Daniel, Kristin, kom að honum látnum í risi heimilis fjölskyldunnar á fimmtudaginn.

„Sonur minn ætti ekki að þurfa að deyja til að hlustað sé á hann,“ sagði Maureen Fitzpatrick, móðir Daniel, í samtali við New York Daily News, og segir eitthvað mikið vera að þegar börn geti ekki leitað til fullorðinna í ábyrgðarstöðum. „Ekkert foreldri á að þurfa að jarða barnið sitt.“

Faðir Daniels beinir orðum til foreldra eineltisseggjanna

Faðir Daniel, sem ber sama nafn og sonur sinn, hefur nú birt um tuttugu mínútna myndband þar sem hann beinir orðum sínum meðal annars til foreldra eineltisseggjanna.

„Það sem ég vil segja er að ég vona að þið þurfið aldrei að ganga í gegnum það sem fjölskylda mín gengur nú í gegnum. Þið fáið að halda utan um börnin ykkar alla daga og öll kvöld það sem eftir er. Ég fæ ekki að gera það lengur. Litlu skrímslin ykkar sviptu mér og konunni minni þessu.“

Fjölskylda Daniels hefur nú hafið fjársöfnun til að fjármagna útför Daniels.

„Við viljum að Daniel fái almennilega útför, auk þess að beina kastljósinu að því einelti sem drap hann,“ segir systir Daniels á fjármögnunarsíðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×