Innlent

Íslenskri konu nauðgað í Sviss

Andri Ólafsson skrifar
Karlmaður er í haldi í svissnesku borginni Basel grunaður um að hafa nauðgað 26 ára gamalli íslenskri konu um þarsíðustu helgi. Konan er búsett í borginni.

Maðurinn var handtekinn í liðinni viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald en hann og konan þekkjast ekki. Konan hefur verið í sambandi við þarlend lögregluyfirvöld vegna málsins og hefur verið útveguð viðeigandi læknisaðstoð sem og aðstoð lögreglu og lögfræðings.

Lögreglan hefur framkvæmt húsleit hjá manninum og safnað viðeigandi sýnum og sönnunargögnum vegna málsins. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvers lenskur karlmaðurinn er en hann er þó ekki íslenskur.

Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir að málið sé ekki komið á borð ráðuneytisins. Það sé allur gangur á því hvort sakamál komi inn á borð ráðuneytisins en það sé þá frekar að frumkvæði málsaðila en ekki þarlendra lögregluyfirvalda. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×