Innlent

Fá fentanýl sent með pósti

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur komist að því að verkjalyfið fentanýl, sem hefur verið misnotað hér á landi og valdið dauða, sé pantað á netinu af þeim sem misnota það og sent til Íslands.

Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis hafa tvö dauðsföll orðið á árinu þar sem sterkar líkur eru á að þau megi rekja til eitrunar af völdum lyfsins.

Í ágúst síðastliðnum rannsakaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvort andlát ungs manns tengdist neyslu á lyfinu. Annar ungur maður, vinur þess sem lést, missti meðvitund sömu nótt og leikur einnig grunur á því að fentanýl hafi komið við sögu í því máli. Þegar rannsókn málanna stóð yfir fékk lögreglan vísbendingar um að lyfið gengi kaupum og sölum á netinu. Nú er þeirri rannsókn lokið og hefur lögreglan komist að því að þeir sem misnota lyfið panti það á netinu. 

Einar  Guðberg Jónsson, lögreglufulltrúi hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að erfitt sé að finna lyfið þegar það kemur til landsins með póstinum en verið sé að þróa betri leiðir til að finna efnin í meira mæli. 

Hann segir að vitað sé að fentanýl sé boðið til sölu á netinu í Kína og Mexíkó en að ekki hafi fengist staðfest hvort lyfið sem kemur til Íslands komi þaðan.

Talið er að efnið sem um ræðir heiti Fentanýl W18 en það var upphaflega þróað sem sterkt verkjalyf fyrir krabbameinssjúklinga en fór aldrei á markað sökum þess að það var talið of sterkt og ávanabindandi.

Einar segir að lögreglan hafi miklar áhyggjur af notkun lyfsins hjá ungu fólki á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×