Enski boltinn

Góðgerðarleikur Rooney í beinni á Facebook

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er sérstakt kvöld fram undan hjá Wayne Rooney.
Það er sérstakt kvöld fram undan hjá Wayne Rooney. vísir/getty
Wayne Rooney fær góðgerðarleik á Old Trafford í kvöld og um leið verður skrifaður nýr kafli í sögu Facebook.

Man. Utd mun spila við Everton sem er gamla félagið hans Rooney. Mikið af gömlum kempum mun taka þátt í fjörinu og ágóðinn rennur allur til góðgerðarmála.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á Facebook en þetta verður í fyrsta skipti sem leikur á milli enskra úrvalsdeildarliða er í beinni á samfélagsmiðlinum.

Hægt verður að horfa á leikinn á síðu Man. Utd og síðu Rooney á Facebook. Leikurinn hefst klukkan 19.00.

1,7 milljarður manna mun því hafa frían aðgang að leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×