Enski boltinn

Tilboði Everton í Williams hafnað

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Williams var frábær með Wales á EM.
Williams var frábær með Wales á EM. vísir/getty
Everton mun ekki geta keypt Ashley Williams af Swansea fyrir 10 milljónir punda.

Það er rúmlega 1,5 milljarður íslenskra króna. Everton bauð Swansea þessa upphæð en tilboðinu hefur verið hafnað.

Williams er að verða 32 ára og er samningsbundinn Swansea til 2018. Hann hefur spilað yfir 300 leiki fyrir félagið síðan hann var keyptur á 300 þúsund pund frá Stockport árið 2008.

Everton er að undirbúa sig fyrir að missa John Stones en Man. City virðist ætla að teygja sig langt í að kaupa hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×