Lífið

FM95BLÖ bræður gefa út spil: "Besta borðspil allra tíma“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Auddi, Steindi og Egill gefa út spil.
Auddi, Steindi og Egill gefa út spil.

Síðar í nóvember kemur út skemmtispilið Skellur en höfundar spilsins eru þeir Auðunn Blöndal, Steinþór Hróar Steinþórsson og Egill Einarsson ásamt höfundum Nefndu3 sem sló í gegn síðustu jól.



„Hugmyndin fæðist í bekkpressubekknum í Sporthúsinu snemma 2015 þegar ég og Blö erum að repsa 150 kílóunum í rólegheitunum,“ segir Egill Einarsson í samtali við Vísi.



„Ég er að hneykslast á honum á æfingunni að enn einu sinni er hann að taka spilakvöld með móðir sinni og systrum. Það er ekki til það spil í heiminum sem Blö hefur ekki spilað og líklega enginn með meiri þekkingu á þessu sviði en hann.“



Egill spurði því næst Auðunn af hverju þeir nýttu ekki þessa þekkingu. „Þarna fór boltinn af stað og við smíðuðum besta borðspil allra tíma.“



Í tilkynningu frá þeim félögum segir að lítið annað sé hægt að gera á Sauðárkróki en að spila og sú reynsla sem Auðunn Blöndal fékk við að búa í þeim smábæ var ómetanleg við gerð spilsins.



Þar kemur einnig fram að erfitt verði að spila þetta spil án þess að gráta úr hlátri. Spilið hefur verið í vinnslu í langan tíma og lögðu þeir upp með að búa til til skemmtilegasta borðspil allra tíma.



Hér má sjá Facebook-síðu spilsins en þeir félagar ætla að gefa nokkur spil á síðunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.