Góðar fréttir úr herbúðum Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2016 10:30 Emre Can og Jürgen Klopp. Vísir/Getty
Þýski miðjumaðurinn Emre Can er byrjaður að æfa með Liverpool á nýjan leik eftir meiðsli og gæti náð seinni undanúrslitaleiknum í Evrópudeildinni. Liverpool mætir Villarreal á Anfield á fimmtudaginn og þarf að vinna upp 1-0 forskot spænska liðsins frá því í fyrri leiknum í Þýskalandi. Emre Can var ekki með í fyrri leiknum á móti Villarreal en hann hefur ekki getað spilað síðan að hann meiddist á liðböndum í ökkla í seinni leiknum á móti Borussia Dortmund. Óttast var að meiðsli Emre Can væru það alvarleg að tímabilið hans væri búið. Endurhæfing hans gekk hinsvegar vel. Hinn 22 ára gamli Emre Can hefur verið lykilmaður á miðju Liverpool og ekki hefur mikilvægi hans minnkað eftir að landi hans Jürgen Klopp varð knattspyrnustjóri félagsins. Jürgen Klopp hvíldi lykilmenn í 3-1 tapi á móti Swansea City í síðasta deildarleik en Liverpool er eins og er í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liverpool er níu stigum á eftir Manchester City sem situr í fjórða sætinu þegar þrjár umferðir eru eftir. Sigur í Evrópudeildinni er því eini möguleiki Liverpool til að komast í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Emre Can kom til Liverpool frá Bayer Leverkusen í júní 2014 en hann er á sínu öðru tímabili á Anfield. Hann spilaði sína fyrstu landsleiki eftir að hann kom til Liverpool og hefur leikið fimm landsleiki fyrir Þýskaland undanfarin tvö ár.Vísir/Getty
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Körfubolti Fleiri fréttir Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Sjá meira