Bíó og sjónvarp

Ein dýrasta mynd sem gerð hefur verið á Íslandi

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Lói – þú flýgur aldrei einn, er ein dýrasta mynd sem gerð hefur verið á Íslandi.
Lói – þú flýgur aldrei einn, er ein dýrasta mynd sem gerð hefur verið á Íslandi. Mynd/GunHil
Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri og framleiðandi myndarinnar Lói – þú flýgur aldrei einn, segir ferlið ganga vel. Fréttablaðið/Ernir.
Hugmyndin að handritinu kemur frá Friðriki Erlingssyni, handritshöfundi teiknimyndarinnar. Friðrik bjó á Eyrarbakka og fylgdist mikið með fuglunum í fjörunni, það er óhætt að segja að þar hafi hugmyndin að handriti myndarinnar kviknað,“ segir Hilmar Sigurðsson kvikmyndagerðamaður spurður út í íslensku teiknimyndina Lói – þú flýgur aldrei einn, sem frumsýnd verður um jólin 2017. Myndin er ein sú allra dýrasta sem gerð hefur verið hér á landi, en framleiðslukostnaður hennar nemur rúmum milljarði króna.

Hilm­ar Sig­urðsson og Gunn­ar Karls­son, frum­kvöðlar í tölvu­teikni­mynda­gerð á Íslandi, framleiða myndina ásamt belg­íska fyr­ir­tækinu Cy­born sem hef­ur mikla reynslu í fram­leiðslu á tölvu­gerðu teikni­mynda­efni.

„Árið 2012 stofnuðum við Gunnar teiknimyndafyrirtækið GunHil en áður höfðum við félagarnir unnið teiknimyndirnar Litla lirf­an ljóta, Anna og skapsveifl­urn­ar og Hetj­ur Val­hall­ar – Þór. Lói er mynd í stærri kantinum og það er frábært að fá fyrirtæki eins og Cyborn með okkur í lið. Þeir eru miklir reynsluboltar í þessum bransa ásamt því að vera mjög framar­lega í sta­f­rænni hreyfi­mynda­vinnslu,“ segir Hilmar.





Lói þarf að takast á við harðan vetur og grimma óvini í myndinni. Mynd/GunHil
En um hvað fjallar Lói?

„Lói – þú flýg­ur aldrei einn segir frá litlum lóuunga hér á Íslandi. Hann afar erfitt uppdráttar og er ófleyg­ur að hausti þegar far­fugl­arn­ir halda suður á bóg­inn. Hann þarf því að takast á við harðan vetur, grimma óvini og önnur vandamál,“ segir Hilmar.

Að búa til teiknimynd er langt og flókið vinnsluferli og er þolinmæði stór partur af ferlinu sem spannar nokkur ár. Árni Ólaf­ur Ásgeirs­son leik­stýr­ir myndinni ásamt Gunn­ari Karls­syni, sem jafn­framt er höf­und­ur út­lits og per­sóna.

„Þetta lofar mjög góðu, við höfum fengið frábær viðbrögð og ferlið gengur vel. Ferlið er langt en mjög skemmtilegt og hefst á því að teikna upp persónur og umhverfi myndarinnar,“ segir Hilmar og bætir við að sem stendur séu þeir að vinna í hreyfimyndagerðinni, eða kvikun eins og það er kallað á íslensku, en það ferli snýst um að hreyfa myndina til.

Þar sem þetta er alþjóðlegt verkefni, eru raddirnar fyrst teknar upp á ensku og fór hljóðupptaka fram í London í lok apríl. Umsjón með hljóðsetningu hefur Gunnar Árnason hljóðupptökustjóri en Atli Örvarsson sér um tónlistina í myndinni.

„Þýska fyr­ir­tækið ARRI World­­sales fer með heims­sölu­rétt á mynd­inni og hef­ur hún verið seld til sýn­inga í kvik­mynda­hús­um til yfir þrjátíu landa. Átján þeirra landa hafa ákveðið að talsetja teiknimyndina á sínu eigin tungumáli og líklega verða þau fleiri. Enn hefur ekki verið ákveðið hverjir koma til með að talsetja teiknimyndina á íslensku en það mun þó skýrast von bráðar,“ segir Hilmar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.