Enski boltinn

Wenger ánægður með úrslitin, ekki spilamennskuna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Wenger hefur séð sína menn betri en í dag.
Wenger hefur séð sína menn betri en í dag.
„Þegar upp er staðið eru þetta góð úrslit fyrir okkur,“ segir Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, eftir jafnteflið í dag gegn Manchester United. Liðið gerði 1-1 jafntefli á Old Trafford

„Þetta var ekkert sérstaklega skemmtilegur leikur milli tveggja mjög skipulagðra liða sem vörðust bæði vel. Við náðum ekki að koma þeim nægilega oft úr stöðu og leikmenn mínir voru ekki nægilega fljótir að láta boltann vinna.“

Wenger segir að liðið hafi kannski verið heppið að hafa ekki fengið fleiri mörk á sig í dag.

„Þegar maður er 1-0 undir og skorar undir lokin líður manni oft eins og maður hafi unnið leikinn. Það vantaði ákveðni í mína menn í leiknum í dag en við sýndum karakter að koma til baka og jafna leikinn“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×