Innlent

Hundur beit póstbera á Suðurnesjum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hundurinn beit bréfberann í hönd og fót.
Hundurinn beit bréfberann í hönd og fót. Vísir/Hörður
Hundur beit póstbera í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í síðustu viku. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að atvikið hafi orðið með þeim hætti að bréfberinn hafði sett póst inn um lúgu og var að ganga frá viðkomandi húsi þegar hundurinn slapp út. Hann beit starfsmanninn í hönd og fót.

Póstberinn fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar og lögregla tilkynnti málið til Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×