Innlent

Klerkur tapaði meiðyrðamáli gegn mági barnsföður síns

Jakob Bjarnar skrifar
Ummælin voru sannleikanum samkvæm og verða því ekki dæmd dauð og ómerk.
Ummælin voru sannleikanum samkvæm og verða því ekki dæmd dauð og ómerk.
Séra Hildur Björk Hörpudóttir kærði mág barnsföður síns, Sigurð Hjalta Magnússon, fyrir meiðyrði. Dómur var upp kveðinn í Héraðsdómi Reykjaness, af Söndru Baldvinsdóttur, á þá leið að ekki þættu næg efni til kærunnar. Bæði þurfa að borga málskostnað.

Séra Hildur Björk fór fram á milljón í miskabætur auk vaxta en ummælin, sem féllu á Facebook í upphafi þessa árs, komu fram í kjölfar þess að greint var frá því að Hildur Björk hafi verið skipuð prestur í Reykholti. Meðal þess sem farið var fram á að væri dæmt dautt og ómerkt er: „Sorgardagur fyrir Þjóðkirkjuna.“ Og: „Þjóðkirkjan ætlar að vígja tálmanamóður til prests.“ Ummælin vísa til forræðisdeilu Séra Hildar Bjarkar við barnsföður sinn en í dómsorði segir að ekkert hafi komið fram í umræddum ummælum sem ekki væri sannleikanum samkvæmt. Og hver maður væri frjáls skoðana sinna.

Í dómnum er forræðisdeilumálið reifað og vísað til mats sýslumannsins í Kópavogi þar sem fram kemur að Séra Hildur Björk hafi augljóslega tálmað umgengni barna við föður sinn. Þar var sérstaklega tekið fram að þær hömlur á samskipti barna og föður þeirra yrðu ekki taldar annað en brot á rétti barnanna til umgengni við föður sinn. „Þannig liggur fyrir að stefnandi hefur tálmað umgengni föður og barnanna og byggjast ummæli stefnanda um umgengnistálmanir á staðreyndum þar um. Þá fela ummæli hans um að skipun stefnanda í embætti prests væri sorgardagur, að það væri von stefnda að framganga hennar yrði á kristilegri og kærleiksríkari nótum og að hún hefði sjálf kastað rýrð á sig, í sér gildisdóm um stefnanda.“

Þá kemur jafnframt fram í dómi að Séra Hildur Björk Hörpudóttir hefur sjálf fjallað opinberlega um einkamálefni fjölskyldunnar, en hún kom frásögn sinni um meint ofbeldi föður barnanna á framfæri opinberlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×