Tottenham valtaði yfir Stoke Magnús Ellert Bjarnason skrifar 9. desember 2017 17:00 Tottenham höfðu fyrir leikinn í dag ekki unnið seinustu 5 deildarleiki og von þeirra um titilbaráttu því orðin veik. Þeir svöruðu hins vegar gagnrýnisröddum í dag þegar þeir völtuðu yfir slakt lið Stoke á heimavelli sínum Wembley, 5-1. Tottenham komst yfir á 21. mínútu eftir óheppilegt sjálfsmark Ryan Shawcross, staðan 1-0 í hálfeik. Leikmenn Tottenham gerðu síðan útum leikinn á tveggja mínúta kafla í síðari hálfleik þegar þeir skoruðu tvö mörk. Markahrókurinn Harry Kane maður leiksins með 2 mörk. Þá fundu þeir Heung-Min Son og Christian Eriksen einnig netmöskvana fyrir heimamenn og áttu góðan leik. Ryan Shawcross minnkaði munina fyrir gestina í lok leiks og bætti þar með aðeins upp fyrir sjálfsmarkið sem kom Tottenham á blað í fyrri hálfleik. Sannfærandi sigur heimamanna því niðurstaðan sem sitja áfram í 5. sæti með 28 stig, 15 stigum á eftir toppliði Manchester City. Stoke eru sem fyrr í bullandi fallbaráttu, með 16 stig í 15 sæti, aðeins þrem stigum frá fallsæti. Enski boltinn