Innlent

Gat ekki slökkt á sjónvarpinu og hringdi á lögregluna

Samúel Karl Ólason skrifar
Samkvæmt dagbók lögreglu var hægt að aðstoða konuna símleiðis. Sá sem svaraði leiðbeindi henni svo hún gat tekið rafmagnssnúruna úr sambandi.
Samkvæmt dagbók lögreglu var hægt að aðstoða konuna símleiðis. Sá sem svaraði leiðbeindi henni svo hún gat tekið rafmagnssnúruna úr sambandi. Vísir/Getty
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi símtal frá eldri konu sem átti í vandræðum með að slökkva á sjónvarpstæki sínu. Óskaði hún eftir aðstoð lögreglunnar vegna þessa.

Samkvæmt dagbók lögreglu var hægt að aðstoða konuna símleiðis. Sá sem svaraði leiðbeindi henni svo hún gat tekið rafmagnssnúruna úr sambandi.

Þá haf ölvaður maður handtekinn í Hafnarfirði í nótt. Hann var gestkomandi í húsi þar sem hann var óvelkominn og neitaði hann að fylgja fyrirmælum lögreglu. Hann var vistaður í fangageymslu á meðan ástand hans lagaðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×