Innlent

Þú finnur Ís­lendinga út um allan heim í fluginu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta.
Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta. Sigurjón Ólason

„Þetta er dálítið magnað hvað þú rekst á Íslendinga víða í þessum alþjóðlega flugrekstri. Þeir eru eiginlega út um allt. Þú rekst á Íslendinga ótrúlega víða,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta.

Hann er í hópi viðmælenda í sjötta þætti Flugþjóðarinnar á Stöð 2 sem ber yfirskriftina Fólkið í fluginu. Þar rýnum við í flugáhugann á Íslandi, spyrjum hversvegna Íslendingar urðu flugþjóð og heyrum mergjaðar flugsögur.

Hér má sjö mínútna myndskeið úr þættinum:

„Við höfum náttúrlega verið mjög ævintýragjarnir. Við höfum verið að fljúga fyrir hina og þessa út um allan heim. Og íslenskt starfsfólk er bara duglegt fólk,“ segir Kristinn Halldórsson flugvélaverkfræðingur, sonur Halldórs Sigurjónssonar, fyrsta flugvirkja Loftleiða.

Kristinn Halldórsson flugvélaverkfræðingur starfaði lengst af hjá Icelandair/Flugleiðum og þar áður hjá Cargolux. Hann varðveitir flugmyndasafn föður síns, Halldórs Sigurjónssonar, fyrsta flugvirkja Loftleiða.Egill Aðalsteinsson

„Það er gríðarleg þekking og sérhæfing á flugi hérna heima. Ég efast um að það séu mörg lönd þar sem þú ert með fleiri flugvélar skráðar. Ef við tölum um þessa frægu höfðatölu þá efast ég um að það séu fleiri flugvélar víða heldur en hér heima.

Og þú finnur Íslendinga eiginlega út um allt. Og orðsporið á þeim, sem líka bara hjálpar okkur, orðsporið er gott. Við erum lausnamiðaðir, við erum harðduglegir, og þetta hefur bara skilað okkur ansi vel áfram í gegnum tíðina,“ segir Baldvin Már.

Guðlaugur Ingi Sigurðsson, flugstjóri hjá Air Atlanta, flýgur júmbó-þotum um allan heim.Egill Aðalsteinsson

Þegar við spyrjum hversvegna Íslendingar urðu svona öflug flugþjóð er skýring flestra: Við búum á afskekktri eyju í norðanverðu Atlantshafi fjarri öðrum löndum.

En fleira þurfti til: Útrásarþrá, ævintýragirni, hugrekki, sjálfsbjargarviðleitni og frumkvöðlaeðli eru þættir sem einnig eru nefndir.

Rafn Þór Rafnsson, yfirflugvirki hjá Air Atlanta, er dæmi um Íslendinga í fluginu sem starfa erlendis. Hann stýrir viðhaldsstöð félagsins á flugvellinum í Jedda í Sádí-Arabíu.Egill Aðalsteinsson

Þátturinn verður endursýndur á Stöð 2 næstkomandi sunnudag, 13. október, klukkan 17:00.

Áskrifendur Stöðvar 2 og Stöðvar 2+ geta séð þættina um Flugþjóðina í streymisveitu Stöðvar 2 hvar og hvenær sem er. Hér má sjá kynningarstiklu fyrir þáttaröðina:


Tengdar fréttir

Flugfreyjurnar segjast eiga sinn þátt í flugævintýrinu

Fyrrverandi flugfreyjur, sem voru fyrsta kynslóðin sem gerðu starfið að ævistarfi, segjast ekki síður en karlarnir hafa átt þátt í að skapa íslenska flugævintýrið. Í þættinum Flugþjóðin er rætt við fjölda núverandi og fyrrverandi starfsmanna úr fluggeiranum.

Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu

Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×