Innlent

Harður árekstur í Ártúnsbrekku

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Áreksturinn var nokkuð harður.
Áreksturinn var nokkuð harður. Mynd/Aðsend
Nokkrar tafir urðu á umferð vestur Ártúnsbrekki í morgun eftir að tveir fólksbílar lentu í árekstri um klukkan níu. Engin slys urðu á fólki.

Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra í umferðardeild er verið að leggja lokahönd á að koma bílunum í burtu en báðir bílar skemmdust talsvert í árekstrinum.

Umferð er með þyngsta móti á morgnana þessa dagana enda skólastarf að hefjast í skólum á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×