Lífið

Skúli kominn á fast með flugfreyju hjá WOW

Guðný Hrönn skrifar
WOW air flaug sitt fyrsta flug til Miami á dögunum.
WOW air flaug sitt fyrsta flug til Miami á dögunum. Mynd/WOW
Fregnir herma að Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, sé kominn í samband. Sú heppna mun vera flugfreyjan Gríma Björg Thorarensen en andlit hennar hefur prýtt ófáar WOW-auglýsingarnar.

Parið mun ekkert vera að flýta sér en Skúli er ennþá skráður einhleypur á Facebook. Björg er fædd árið 1991 og Skúli árið 1968.

Þess má geta að Skúli skildi við fyrrverandi eiginkonu sína árið 2013 en saman eiga þau þrjú börn. Eftir það átti hann í ástarsambandi við fjölmiðlakonuna Friðriku Hjördísi Geirsdóttur en þau hættu saman árið 2015.

Gríma Björg Thorarensen er hér fyrir miðju í auglýsingu frá WOW.WOW





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.