Þaulskipulagt innbrot í geymslu listakonunnar Karólínu: „Svolítið ógnvekjandi“ Birgir Olgeirsson skrifar 2. janúar 2017 16:44 Eitt af verkum Karólínu sem þjófarnir skildu eftir. Vísir/Facebook „
Þetta innbrot hefur verið afar vel skipulagt og þeir höfðu aðeins hug á þessum málverkum, sem er svolítið ógnvekjandi,“ segir Stephen Lárus Stephen en sjö ókláruðum málverkum móður hans, Karólínu Lárusdóttur, var stolið úr geymslu við Vatnsstíg í Reykjavík um hátíðirnar.Stephen segir í samtali við Vísi að talið sé að innbrotið hafi verið framið á tímabilinu 23. desember til 28 desember. Hann segir þessar myndir afar verðmætar fjölskyldunni því þær eru þær síðustu sem móðir hans vann að áður en hún fékk heilablóðfall árið 2013. Hún hefur verið óvinnufær síðan og ekki getað klárað þær. Hann segir nánast enga leið fyrir þjófana að selja myndirnar hér á landi. „Ég myndi þekkja þessi verk samstundis, þau eru svo sérstök miðað við önnur málverk móður minna. Það myndi komast samstundis upp,“ segir Stephen. Hann vonar að þjófarnir muni komast að því og skila verkunum þegar það gerist.Stephen segir að talið sé að eitthvað hafi hrætt þjófana því þeir skildu fjögur málverk eftir í geymslunni. Þeir létu hins vegar allt annað í friði í geymslunni en þurftu að hafa fyrir því að finna þessi verk sem voru vel falin. Hann hvetur þá sem einhverjar upplýsingar geta veitt um málið að hafa samband við lögreglu.
Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Innlent Fleiri fréttir Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig En, stefnirðu ekkert lengra en að verða kennari? Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju „Hann hverfur ofan í jörðina“ Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið „Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Nóg af heitu vatni á Selfossi Glerbrot í lauginni „Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Stjónmálafræðingur segir kosningar nær en marga gruni Sjá meira