Erlent

Nítján létust í rútuslysi í Kína

Atli Ísleifsson skrifar
Hraðbrautinni var lokað á meðan hreinsunarstarf fór fram. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Hraðbrautinni var lokað á meðan hreinsunarstarf fór fram. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Nítján manns hið minnsta látnir eftir að rúta valt á hraðbraut í Guangdong-héraði í suðurhluta Kína fyrr í dag.

Kínverskir fjölmiðlar greina frá því að 44 manns hafi verið um borð í rútinni og hafa fjölmargir verið fluttir á nálæg sjúkrahús.

Rigning var á svæðinu og má sjá á myndum frá vettvangi hvernig rútan liggur á hvolfi í vegarkantinum.

Hraðbrautinni var lokað á meðan hreinsunarstarf fór fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×