Sannur Finni áreitti þingkonu kynferðislega í jólaveislu þingsins Atli Ísleifsson skrifar 19. desember 2017 11:21 Teuvo Hakkarainen, þingmaður Sannra Finna, hefur sjálfur viðurkennt að hafa verið ölvaður og kysst þingkonu Þjóðarbandalagsins í kaffistofu þingsins. Wikipedia Commons
Maria Lohela, forseti finnska þingsins, segir það nú vera til skoðunar hvort að blása eigi af árlega jólaveislu þingmanna á finnska þinginu. Þetta sé gert eftir að fréttir bárust af því að þingmaður hafi beitt þingkonu kynferðislegri áreitni með því að kyssa hana á munninn með valdi í jólaveislu þessa árs sem fram fór fyrr í mánuðinum. Teuvo Hakkarainen, þingmaður Sannra Finna, hefur sjálfur viðurkennt að hafa verið ölvaður og kysst Veera Ruoho, þingkonu Þjóðarbandalagsins, í kaffistofu þingsins. Finnskir fjölmiðlar hafa greint frá því að Kari Tolvanen, þingmaður Þjóðarbandalagsins, hafi svo komið að þeim og stíað þeim í sundur.Með dólgslæti Eftir atvikið á Hakkarainen að hafa farið í herbergi þingflokks Blárrar framtíðar þar sem hann var með dólgslæti. Jussi Halla-aho, formaður Sannra Finna, segir að hegðun Hakkarainen verði tekin til umræðu innan þingflokksins í vikunni. Verði þar ákveðið hvort hann verði áminntur eða jafnvel vísað úr þingflokknum.Með áfengiseitrun Einnig hafa borist fréttir af því að kalla hafi þurft til Päivi Räsänen, þingmann Kristilegra demókrata, sem er læknir að mennt, eftir að talið var að aðstoðarmaður þingflokks Sannra Finna hafi fengið áfengiseitrun í þessari sömu jólaveislu. Lohela, forseti þingsins, hefur beðið þingflokkana um að senda sér ályktanir um hvort blása eigi þessar árlegu jólaveislur þingflokkanna af.
Mest lesið Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Ísraelar herja á miðborg Beirút Erlent Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni Innlent Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Innlent Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Fleiri fréttir Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Sjá meira