Handtaka fyrrverandi forseta fyrirskipuð Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 14. desember 2017 07:00 Cristina Fernández de Kirchner vísar öllum ásökunum á bug. vísir/epa
Dómari í Argentínu hefur gefið út handtökuskipun á hendur fyrrverandi forseta landsins, Cristinu Fernández de Kirchner. Fernández, sem var forseti frá 2007 til 2015, er sökuð um samvinnu við erlent ríki til að koma í veg fyrir rannsókn á mesta hryðjuverkinu í sögu Argentínu. Voveiflegt andlát sérstaks saksóknara kemur einnig við sögu. Í janúar árið 2015 fannst saksóknarinn Alberto Nisman látinn á heimili sínu í Búenos Aíres með skotsár á höfði nokkrum klukkustundum áður en hann átti að koma fyrir þingið og kynna skýrslu sína um meinta aðild Fernández að hinu svokallaða „Irangate“ þegar hún var forseti. Sérstaki saksóknarinn hafði árið 2006 sakað íranska embættismenn um að standa á bak við sprengjuárásina á menningarsetur gyðinga í Búenos Aíres í júlí 1994. Alls létust 85 manns í árásinni og um 300 særðust. Nisman hélt því fram að liðsmenn Hizbollah hefðu framið hryðjuverkið. Í skýrslu sinni sem til stóð að kynna fyrir þinginu árið 2015 sakaði Nisman Cristinu Fernández de Kirchner og utanríkisráðherra hennar, Héctor Timerman, um að hafa hylmt yfir meinta aðild Írana að hryðjuverkinu. Saksóknarinn fullyrti að ríkisstjórn Fernández hefði með því viljað tryggja hagstæða viðskiptasamninga við Íran, einkum viðskipti með olíu frá Íran, að því er greint er frá á fréttavef BBC. Argentínumenn voru slegnir yfir fullyrðingum saksóknarans og veltu því fyrir sér hvernig dauða hans hefði borið að höndum. Samkvæmt rannsókn sem stjórn Fernández fyrirskipaði svipti saksóknarinn sig lífi. Hundruð þúsunda Argentínumanna efndu til mótmæla á götum úti og sökuðu yfirvöld um að standa á bak við andlát saksóknarans. Eftir að flokkur Fernández, Perónistaflokkurinn, missti völdin fyrir tveimur árum var fyrirskipuð ný rannsókn. Niðurstaðan varð sú að Nisman hefði verið myrtur. Það var svo í síðustu viku sem dómarinn Claudio Bonadio fyrirskipaði handtöku forsetans fyrrverandi og nokkurra embættismanna vegna ásakananna um samkomulagið við Íran. Fernández, sem nú er orðin þingmaður, efndi til blaðamannafundar og sagði ásakanirnar fáránlegar. Ekki verður hægt að handtaka hana nema þingið aflétti friðhelgi hennar. Enn standa yfir rannsóknir vegna ásakana um að forsetinn fyrrverandi hafi hagnast gríðarlega á því að taka við mútugreiðslum vegna byggingaverkefna og með því að hafa áhrif á gengi argentínska gjaldmiðilsins.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Fyrrum forseti Argentínu ákærð fyrir spillingu Talið er að ríkisstjórn hennar hafi ítrekað gert opinbera samninga við viðskiptamann sem er nátengdur henni. 27. desember 2016 19:00 Mest lesið Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Ísraelar herja á miðborg Beirút Erlent Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni Innlent Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Innlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafinn í plastpoka Innlent Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Vegfarandinn er látinn Innlent Fleiri fréttir Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Sjá meira
Fyrrum forseti Argentínu ákærð fyrir spillingu Talið er að ríkisstjórn hennar hafi ítrekað gert opinbera samninga við viðskiptamann sem er nátengdur henni. 27. desember 2016 19:00