„Málið snýst um forkaupsrétt sem er skýlaus og fyrirvaralaus í leigusamningi sem er ekki virtur. Við gerum enga athugasemd við söluna á Korputorginu en eigum aftur á móti forkaupsrétt á þeim hluta sem snýr að Bónus og viljum fá að nýta hann. Það er okkar ætlun að reka verslunina þarna áfram,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga.

Fasteignafélagið Korputorg ehf. heldur utan um rekstur verslunarkjarnans og keypti Kristinn ehf. það í október. Til stendur að flytja mestalla starfsemi Ísam í húsnæðið á næstu árum og þá fyrirtækin Mylluna, Ora, Frón og Fastus. Kristinn er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur, útgerðarkonu í Vestmannaeyjum, og fjölskyldu.
„Það er búið að leigja út allt Korputorgið og þar verður blönduð starfsemi og það er gert ráð fyrir að þar verði smásala að hluta til. Ég á eftir að taka formlegar viðræður við Bónus en það er leigusamningur í gildi og við erum að leita að góðum og traustum leigutökum,“ segir Sævar Þór Ólafsson, framkvæmdastjóri Korputorgs ehf., og vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
SMI er í eigu erlenda sjóðsins The Calabry Trust en upplýsingar um eignarhald hans eru ekki skráðar hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra. Jákup á Dul Jacobsen, fjárfestir og stofnandi Rúmfatalagersins, er samkvæmt henni stjórnarformaður SMI.
Davíð Freyr Albertsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri SMI og fyrrverandi eigandi verslunarkjarnans, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Ekki náðist í Jákup á Dul Jacobsen.