Fótbolti

Bayern áfram í bikarnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Costa fagnar marki sínu í kvöld.
Costa fagnar marki sínu í kvöld. vísir/getty
Bayern München tryggði sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar.

Bayern lagði þá Wolfsburg, 1-0, með marki frá Douglas Costa á 17. mínútu leiksins.

Þetta var líflegur leikur og Wolfsburg náði að velgja stórliðinu undir uggum en hafði ekki erindi sem erfiði.

HSV, Arminia Bielefeld og Borussia Mönchengladbach komust einnig áfram í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×