Hermenn dreifðu nektarmyndum af hermönnum Samúel Karl Ólason skrifar 6. mars 2017 16:20 Frá æfingu landgönguliða í Taílandi. Vísir/Getty
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og rannsóknardeild flotans (NCIS) rannsaka nú dreifingu landgönguliða á nektarmyndum af núverandi og fyrrverandi landgönguliðum af kvenkyni. Myndunum var deilt á Google Drive svæði sem var birt á Facebook hóp sem heitir Marines United, eða landgönguliðar sameinaðir. Hópnum hefur nú verið lokað og Google Drive skjalinu einnig. Um 30 þúsund manns voru í hópnum. Talið er að myndirnar telji hundruðum eða þúsundum. Ekki var eingöngu um nektarmyndir að ræða, heldur einnig myndir af fáklæddum konum og öðrum í einkennisbúningum. Myndunum fylgdu svo margskonar kynferðisleg og niðrandi ummæli. Forsvarsmaður samtakanna The War Horse benti yfirvöldum á myndirnar þann 30. janúar. Facebook síðum þeirra sem höfðu verið að dreifa myndum var einnig eytt, eftir að hernaðaryfirvöld höfðu samband við starfsmenn Facebook.Fyrrverandi ástmenn meðal annars undir grun Minnst einn landgönguliði hefur þar að auki verið rekinn úr hernum. Sá sem upprunalega deildi slóðinni að Google Drive svæðinu hefur einnig verið rekinn úr starfi sínu sem verktaki fyrir stjórnvöld í Bandaríkjunum. Talsmaður landgönguliðsins segir við CNN að hann geti ekki tjáð sig um málið, þar sem rannsóknir séu yfirstandandi. Hins vegar sagði hann ljóst að athæfi sem þetta bryti gegn siðum og reglum landgönguliðsins. Hann þakkaði forsvarsmanni War Horse fyrir að benda yfirvöldum á þetta. Yfirmaður landgönguliðsins, hershöfðinginn Robert B. Neller, slær á sömu strengi og segir þetta ótækt meðal landgönguliða. Blaðamaður War Horse ræddi við fimm konur sem hafa verið nafngreindar, en tvær þeirra telja að fyrrverandi ástmenn hafi dreift myndunum. Aðrar segjast óttast að þær hafi orðið fyrir tölvuárásum.
Mest lesið Leiðtogi Hezbollah allur Erlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Innlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Fleiri fréttir Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Sjá meira