„Ég er í fínu standi og æft af fullu síðustu vikur. Meiðslin hafa auðvitað sett strik í reikninginn hjá mér í vetur,“ segir landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason í blíðunni í Laugardalnum.
Suðurnesjamaðurinn var óheppinn með meiðsli í vetur og náði ekki að láta eins mikið að sér kveða með austurríska liðinu Rapid Vín og hann vildi.
„Þetta var ekki mitt besta tímabil. Ég er aftur á móti orðinn heill heilsu og gott að koma heim og hitta strákana,“ segir Arnór en hann var að glíma við hnémeiðsli og svo tábrotnaði hann einnig.
Arnór Ingvi fékk góða kynningu í Austurríki áður en hann fór þangað er hann skoraði eftirminnilegt sigurmark gegn Austurríki á EM síðasta sumar. Það skapaði honum þó ekki neinar óvinsældir í landinu.
„Það kannski jók væntingarnar til mín sem voru miklar. Ég stóð svo ekki alveg undir þeim. Ég var ekki að lenda í neinum leiðindum út af þessum marki.“
Á sunnudag er stórleikur gegn Króatíu á Laugardalsvelli. Strákunum gengur ekkert að skora gegn þeim en hvernig ætla þeir að brjóta ísinn um helgina?
„Við höfum farið vel yfir þá og vitum allt um þá. Við vitum um nokkrar stöður sem hægt er að sækja á og við verðum að eiga okkar besta leik til þess að vinna. Ég er til í að spila ef á mig verður kallað.“
Arnór Ingvi: Vitum allt um króatíska liðið
Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Mest lesið

„Getum gengið stoltar frá borði“
Handbolti

Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg
Handbolti

Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París
Handbolti

Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti
Enski boltinn



„Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“
Handbolti

Bologna kom til baka gegn AC Milan
Fótbolti

