Hundruð milljóna tjón fyrir Chelsea af því að Diego Costa lak öllu í fjölmiðla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2017 08:15 Er Diego Costa að kyssa eða bíta í Chelsea-merkið? Vísir/Getty
Diego Costa er á leiðinni frá Chelsea en á því er lítill vafi eftir að framherjinn sagði öllum heiminum frá samskiptum sínum og knattspyrnustjórans Antonio Conte. Antonio Conte sendi Costa einkaskilaboð um að ítalski knattspyrnustjórinn vildi ekki hafa Diego Costa í Chelsea-liðinu á næstu leiktíð. Costa sagði frá öllu saman í viðtölum við fjölmiðla eftir vináttulandsleik Spánverja og Kólumbíu. Guardian slær því upp í morgun að þetta útspil Diego Costa muni kosta Chelsea hundruða milljóna þar sem að félagið er nú í mun verri samningsstöðu en áður þegar kemur að selja leikmanninn. Liðin sem vilja kaupa Diego Costa vita að Chelsea þarf að selja hann og blaðamaður Guardian er á því að þessa vegna muni Chelsea missa af milljónum punda eða hundruðum milljónum íslenskra króna. Diego Costa átti frábært tímabil með Chelsea og hjálpaði Chelsea öðrum fremur að verða Englandsmeistari á fyrsti árinu undir stjórn Antonio Conte. Samband Costa og Conte var hinsvegar erfitt sem kristallast í þessum skilaboðum stjórans og í framhaldinu ákvörðun spænska landsliðsmannsins að leka öllu í fjölmiðla. Enskir fjölmiðlar hafa sagt frá áhuga Chelsea á Romelu Lukaku en samningsstaða Everton er líka betri í framhaldinu þar sem að Everton-menn vita að Chelsea þarf nauðsynlega að finna sér stóran og sterkan framherja í stað Diego Costa. Það er því ljóst að útspil Diego Costa mun reynast Chelsea dýrkeypt á félagsskiptamarkaðinum. Það er hinsvegar líka ótrúlegt að tuttugu marka manni í ensku úrvalsdeildinni sé „sagt upp“ í smáskilaboðum frá stjóranum eftir tímabil þar sem liðið varð enskur meistari og var einum bikarúrslitaleik frá því að vinna tvöfalt.
Enski boltinn Mest lesið Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira