Innlent

0 - 3 sigur Íslands gaf tæpar tvær milljónir króna til tippara

Birgir Olgeirsson skrifar
Fimm veðjuðu á þrjú núll sigur Íslands á Lengjunni.
Fimm veðjuðu á þrjú núll sigur Íslands á Lengjunni. Vísir/EPA
Íslenskir tipparar brugðu ekki út af vana sínum og sýndu að þeir hafa trú á Íslenska landsliðinu í knattspyrnu þó svo að Íslenskar getraunir hafi metið Tyrki sigurstranglegri á sterkum heimavelli sínum.

Að því er fram í kemur í tilkynningu frá Íslenskum getrunum tippuðu langflestir á íslenskan sigur á Lengjunni og gleðjast nú ekki bara yfir því að Ísland er að minnsta kosti öruggt með sæti í umspili heldur einnig yfir vinningum sem tippið skilaði þeim í kvöld.

Engir gleðjast þó meira en tippararnir fimm sem af brjálæðislegri bjartsýni tippuðu á Lengjunni að Ísland myndi vinna leikinn 0-3. Þeir skipta á milli sín 1.7 milljón króna í vinning og sá sem fær hæstu upphæðina fær 760.000 krónur í sinn hlut.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×