Fótbolti

Enginn að fara fram úr sér

Tómas Þór Þórðarson í Eskisehir skrifar
Það horfir til betri vegar með meiðslin Arons Einars.
Það horfir til betri vegar með meiðslin Arons Einars. Vísir/Eyþór
Endaspretturinn í átt að HM 2018 í Rússlandi hjá strákunum okkar hefst í kvöld þegar Ísland mætir Tyrklandi í undankeppninni klukkan 18.45 að íslenskum tíma í Eskisahir. Okkar menn eru búnir að koma sér í góða stöðu en þeir eru í öðru sæti riðilsins með 16 stig eins og Króatía, tveimur stigum á undan Úkraínu og Tyrklandi.

Tveir sigrar í næstu tveimur leikjum gulltryggir sæti Íslands í umspilinu að minnsta kosti en ef allt fer á besta veg í kvöld gæti annað sætið verið að minnsta kosti tryggt. Til þess að það gerist þarf Ísland að vinna Tyrki og Úkraína að misstíga sig á móti Kósóvó.

Verkefnið verður svakalega erfitt hér í Eskisahir enda Tyrkir með frábært lið og sérstaklega þegar að það spilar á heimavelli. Í síðasta heimaleik vann liðið Króatíu eftir að hafa gert upp á bak á útivelli á móti Úkraínu nokkrum dögum áður.



Heimir segist vera með plan B í leiknum gegn Tyrklandi.vísir/eyþór
Eru með plan B

Íslenski hópurinn fékk góðar fréttir í fyrradag þegar Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði komst í gegnum æfingu og var hann jákvæður á að byrja leikinn annað kvöld. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi hans fyrir íslenska liðið.

„Við ætlum að taka fulla æfingu á hann núna en svo þurfum við bara að meta það hvernig hann kemur út úr henni. Andinn er góður í honum og hann er klár. Ef hann er klár leggur hann sig fram fyrir land og þjóð. Við þurfum samt að vera skynsamir í okkar ákvörðunum. Það er annar leikur eftir þennan þannig að við munum taka faglega ákvörðun. Það er bara hann og læknarnir sem ákveða hvort hann er klár. Hann segist vera klár í allt,“ segir Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari.

Heimir getur samt ekki beðið endalaust eftir Aroni og kom það endanlega í ljós í gær hvort fyrirliðinn byrjar þó enginn nema liðið fái að vita það fyrr en 75 mínútum fyrir leik.

„Við erum búnir að hugsa hvað við gerum ef hann er ekki þannig að við þurfum ekki tíma í það. Við erum vanir að tilkynna liðið seint kvöldið fyrir leik. Ég hugsa að við viljum halda því. Ef það verður einhver vafi, sem ég held að verði ekki, þá er það bara þessi æfing sem sker úr um það,“ segir Heimir.



Íslensku strákarnir við komuna til Eskisehir.vísir/getty
Enginn að fara fram úr sér

Stemningin og lætin á vellinum í Eskisehir í kvöld verður svakaleg. Tyrkirnir hættu að spila heimaleikina fyrir framan stuðningsmenn í Istanbúl þar sem menn studdu bara við bakið á sínum mönnum í sínum félagsliðum. Fyrir utan höfuðborgina eru allir með Tyrkjunum og því myndast svakaleg stemning.

„Það finnst öllum gaman að spila leiki á völlum þar sem er brjáluð stemning. Við skiljum hvort sem er ekkert hvort þeir eru að öskra áfram Ísland eða áfram Tyrkland. Við bara hugsum þetta eins og það sé stemning á vellinum og við ætlum að taka þá orku og láta það hjálpa okkur en ekki öfugt,“ segir Heimir.

Á dagskránni er ekki bara þessi leikur á móti Tyrklandi heldur mætir liðið Kósóvó á mánudaginn sem verður ekki síður stór leikur. Heimir hefur engar áhyggjur af því að menn séu að fara fram úr sér.

„Þessir strákar eru vanir því að spila mikilvæga úrslitaleiki. Þeir vita allir hvað er í húfi. Það er miklu meira en bara að komast til Rússlands í þessari viku. Þeir vita hvað er í húfi og það er enginn að fara fram úr sér. Það er af og frá. Við þurfum bara helst að passa það að menn verði ekki of metnaðarfullir og reyni að gera of mikið,“ segir Heimir Hallgrímsson.


Tengdar fréttir

Skrítið að hafa Kára ekki við hliðina á mér

Ragnar Sigurðsson, miðvörður íslenska landsliðsins í fótbolta, segir mikil gæði hjá Íslandi og það sýni sig með því að liðið er enn þá að gera góða hluti eftir að liðið komst á EM 2016. Honum fannst skrítið að spila ekki með Kára Árnasyni á móti Úkraínu í síðasta leik.

Svona var fundur Heimis og Arons Einars í Eskisehir

Vísir var með beina beina textalýsingu frá blaðamannafundi íslenska landsliðsins í fótbolta í Eskisehir í Tyrklandi þar sem strákarnir okkar mæta Tyrkjum í undankeppni HM 2018 annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×