Fótbolti

Viðar skoraði ekki en Maccabi vann samt fimmta leikinn í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar er markahæstur í ísraelsku deildinni með 15 mörk.
Viðar er markahæstur í ísraelsku deildinni með 15 mörk. vísir/getty
Þau undur og stórmerki gerðust í kvöld að Viðar Örn Kjartansson steig inn á fótboltavöll án þess að skora.

Viðar var á sínum stað í byrjunarliði Maccabi Tel Aviv sem vann 1-2 útisigur á Hapoel Ashkelon í kvöld.

Selfyssingurinn lék í 81 mínútu en komst ekki á blað. Viðar skoraði fimm mörk í síðustu þremur leikjum þar á undan.

Viðar er áfram markahæsti leikmaður ísraelsku deildarinnar með 15 mörk.

Sigurinn í kvöld var sá fimmti í röð hjá Maccabi. Liðið er í 2. sæti deildarinnar með 53 stig, þremur stigum á eftir toppliði Hapoel Be'er Sheva.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×