Enski boltinn

Man City aftur upp í 3. sætið eftir sigur á botnliðinu | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Manchester City endurheimti 3. sætið í ensku úrvalsdeildinni með 0-2 útisigri á botnliði Sunderland í seinni leik dagsins. Þetta var fjórði sigur City í ensku úrvalsdeildinni í röð.

Það tók lærisveina Peps Guardiola næstum því heilan hálfleik að brjóta Sunderland á bak aftur. Heimamenn voru sjálfir mjög nálægt því að komast yfir þegar Jermain Defoe skaut í stöngina á 20. mínútu.

Þegar þrjár mínútur voru til hálfleiks kom Sergio Agüero City yfir. Þetta var fimmta mark hans í síðustu þremur leikjum.

Á 59. mínútu kom Leroy Sané City svo í 0-2 eftir sendingu frá David Silva.

Fleiri urðu mörkin ekki og City fagnaði góðum sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×