Árásarmaðurinn í Flórída ákærður Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. janúar 2017 10:10 Frá Fort Lauderdale flugvelli. Vísir/EPA
Maðurinn sem myrti fimm manns auk þess að særa sex í skotárás á flugvellinum í Fort Lauderdale í Flórída síðastliðinn föstudag hefur verið ákærður og gæti átt yfir höfði sér dauðarefsingu. Hinn grunaði, Esteban Santiago hafði áður barist í Íraksstríðinu fyrir bandaríska herinn. Guardian greinir frá.Santiago hefur verið ákærður fyrir að bera skotvopn sem og að fremja ofbeldisglæp en Santiago var einnig ákærður fyrir manndráp. Talsmaður lögregluyfirvalda sagði að Santiago hefði viðurkennt að hafa skipulagt árásina. Santiago hafði áður verið sendur í geðrannsókn eftir að hafa gengið inn á skrifstofu bandarísku alríkislögreglunnar, FBI og beðið um hjálp en þar gerðu yfirvöld skotvopn hans upptæk, en henni var skilað til hans aftur. Ekki er ljóst hvort að Santiago notaði sömu byssu í árásinni á föstudag. Yfirvöld standa nú að frekari rannsókn á málinu og hafa 175 manns verið yfirheyrðir, þar á meðal maður sem talinn er möguleiki á að hafi aðstoðað Santiago, en sá var áður með honum í hernum. Yfirvöld telja ekki víst að hægt sé að flokka árásina sem hryðjuverkaárás. Að sögn rannsakenda flaug Santiago frá Alaska þaðan sem hann bjó til Fort Lauderdale með millilendingu í Minneapolis. Hann notaði löglega hálf sjálvirka skammbyssu í árásinni en byssuna gat hann skráð með sér í flugið með löglegum hætti. Flugvöllurinn hefur nú aftur hafið starfsemi með nær eðlilegum hætti, en flugmálayfirvöld reyna nú að koma um 20 þúsund töskum sem voru skildar eftir í árásinni aftur til síns heima en flugstöðin var rýmd í kjölfar árásarinnar og farþegar færðir í öruggt skjól.
Tengdar fréttir Lögregla skilaði byssu til árásarmannsins í Flórida Hinn grunaði var sendur í geðrannsókn á síðasta ári eftir að hafa gengið inn á skrifstofu bandarísku alríkislögreglunnar FBI með hlaðið skothylki í fórum sínum. 7. janúar 2017 23:04 Skotárásin í Flórída: Lögreglan með einn í haldi sem sagði yfirvöld stjórna hugsunum sínum Sá sem er í haldi lögreglu er hinn 26 ára gamli Esteban Santiago sem barðist í Íraksstríðinu fyrir Bandaríkjaher. 7. janúar 2017 08:41 Obama niðurbrotinn vegna skotárásarinnar í Flórída Barack Obama segir að skotárásir af þessu tagi hafi verið alltof tíðar í átta ára forsetatíð sinni. 7. janúar 2017 11:46 Mest lesið Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Ísraelar herja á miðborg Beirút Erlent Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni Innlent Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Innlent Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Fleiri fréttir Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Sjá meira
Lögregla skilaði byssu til árásarmannsins í Flórida Hinn grunaði var sendur í geðrannsókn á síðasta ári eftir að hafa gengið inn á skrifstofu bandarísku alríkislögreglunnar FBI með hlaðið skothylki í fórum sínum. 7. janúar 2017 23:04
Skotárásin í Flórída: Lögreglan með einn í haldi sem sagði yfirvöld stjórna hugsunum sínum Sá sem er í haldi lögreglu er hinn 26 ára gamli Esteban Santiago sem barðist í Íraksstríðinu fyrir Bandaríkjaher. 7. janúar 2017 08:41
Obama niðurbrotinn vegna skotárásarinnar í Flórída Barack Obama segir að skotárásir af þessu tagi hafi verið alltof tíðar í átta ára forsetatíð sinni. 7. janúar 2017 11:46